Vefsíðan hefur lítinn stuðning frá þessum vafra, Við mælum með að skipta yfir í Edge, Chrome, Safari eða Firefox.

Karfa

Karfan þín er tóm

Halda áfram að versla

Spírutegundir - eiginleikar og bragð

Spírurnar einkennir mismunandi útlit, bragð, eiginleikar og innihaldsefni eftir tegundum en allar eru þær í senn hollar, bragðgóðar og fallegar.

Allar spírur stuðla að aukinni orku og eru auðmeltar, þar sem spírun brýtur næringarefnin niður í það form sem líkaminn getur best nýtt sér. Þá eru allar spírur ríkar af trefjum sem styrkja þarmaflóruna. 

  • Alfalfaspírur eru mildar með fersku grænmetisbragði og passa mjög vel með fiski, ofan á brauð, í salatið og græna drykkinn. Þær eru uppáhalds spírur barnanna.

Alfalfaspírur styrkja ónæmiskerfið og hafa lengi verið notaðar sem jurtalyf í Kína, á Indlandi og í Mið-Austurlöndum.

Alfalfaspírur eru auðugar af estrogenlíkum hormónum, sem geta dregið úr einkennum tíðahvarfa og virkað sem forvörn gegn beinþynningu, krabbameini og hjartasjúkdómum. Þær innihalda blaðgrænu og mikilvæg vítamín; A, C, E, K og B6. Jafnframt hafa þær að geyma kalsíum, járn, magnesíum, fosfór, kalíum, natríum, sink og prótein, ásamt fjölda jurtaefna sem stuðla að lækkun LDL kólesteróls í blóði.

Einstaklingar með hormónatengt krabbamein ættu þó ekki að borða alfalfaspírur. Jafnframt ættu þeir sem þjást af sjálfsónæmisjúkdómum vegna virkni þeirra á ofnæmiskerfið.

  • Blaðlauksspírur. Ljósgrænn, grannur stilkur með svörtum hnúði á endanum. Milt laukbragð með eilítið beittu eftirbragði.
Blaðlauksspírur eru ríkar af A, B, C og E-vítamínum en einnig steinefnum, sérstaklega kalsíum, fosfór, járni, brennisteini og magnesíum. Þær hafa græðandi eiginleika, eru bakteríudrepandi, lækka kólesteról og styrkja ónæmiskerfið.
  • Bleikar kál- og smáraspírur. Bleikur stilkur, græn blöð með fjólurauðum æðum. Smágerðar, gott kálbragð.

  • Brokkólíspírur, B.Calabrese eru hrein ofurfæða. Þær innihalda mikilvæg frumuverjandi efni, m.a. glúkórafanín, sem rannsóknir sýna að geta hindrað æxlismyndun og örvað afeitrun krabbameinsfruma úr líkamanum.

Mikilvægt er að borða brokkólíspírurnar ferskar þar sem ensímið mýrósínasa er þýðingarmikið við niðurbrot glúkórafaníns í hið verndandi efni súlfórafan í meltingarveginum. Þá hefur verið sýnt fram á að súlfórafan í brokkólíspírum geti veitt vörn gegn húðkrabbameini af völdum útfjólublárra geisla og hamlað vexti H.Pyroli bakteríunnar.

Brokkólíspírur hafa hátt gildi andoxunarefna, A, C og E-vítamína, sem hjálpa líkamanum við að eyða sindurefnum, en þau eru talin vera orsök ýmissa hrörnunarsjúkdóma. Auk þess innihalda þær mikið af öðrum næringarefnum, m.a. vítamínin B og K, sink, kalsíum, magnesíum og járn.

  • Próteinblanda, er blanda full af spíruðum baunum, ertum, linsum og fræjum (breytilegt eftir árstíðum), m.a. úr mundbaunum, grænum ertum, kjúklingabaunum, mismunandi tegundum linsa og fenugreek.
Próteinblandan er blanda af spíruðum baunum, ertum, linsum og fræjum (breytilegt eftir árstíðum), m.a úr mungbaunum, grænum ertum, kjúklingabaunum, mismunandi tegundum linsa og fenugreek. Spírublandan er rík af næringarefnum, m.a. prótínum, steinefnum og vítamínum, einkum, A, C og K.  
  • Mungbaunir eru góð uppspretta af prótíni, sérstaklega amínósýrunni methionine sem talin er hafa róandi áhrif á líkamann. Þær eru ríkar af C-vítamíni og steinefnum, járni og kalíum.
  • Linsur eru einnig ríkar af prótíni og járni og eru mjög góð uppspretta af C-vítamíni. 
  • Fenugreek eru blóð- og nýrnahreinsandi. Ríkt af fosfór og járni, auk snefilefna og inniheldur ensímið U, sem verndar meltinarveginn og magann. Mjög gott við magabólgum. 
  • Ertur eru ríkar af prótíni og kolvetnum, trefjum og vítamíninu A, ásamt mikilvægum steinefnum, m.a. járni, kalíum og magnesíum. 

    Radísuspírur

    • Radísuspírur China Rose. Vinsælustu radísuspírurnar, fallega grænar með bleikum stilki, afar ljúffengar með hvaða mat sem er.
    • Radísuspírur Daikon. Fagurgrænar, stór blöð með hvítum stilki. Örlítið sætt eftirbragð.
    • Radísuspírur Sangó. Dökkfjólurauð blöð, frekar þykk, á ljósrauðum, sveigðum stilki. Beitt radísubragð en frísklegt, fara vel með hvaða mat sem er.

    Radísuspírur - detoxspírur eru ríkar af andoxunarefnum A og C, auk fólinsýru B9. Jafnframt er að finna í radísuspírum vítamínin B1, B2, B3 B6 og K. Radísuspírur eru auðugar af fosfór, kalsíum, magnesíum, natríum, járni og sinki, auk blaðgrænu (chlorophyll) sem hjálpa til við að flytja súrefni til frumanna og er mjög öflug við afeitrun líkamans. Þá innihalda radísuspírur mikilvæg ensím (mýrósínasa) sem hjálpa til við niðurbrot og upptöku næringarefna. Nýjar rannsóknir benda til að spírunar innihaldi gnægð af  hið frumuverjandi efni glúkórafanín eins og brokkólíspírurnar.